HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild kvennaSkoraði 41 stig í stórsigri Þórs Akureyri í Smáranum – norðankonur einar...

Skoraði 41 stig í stórsigri Þórs Akureyri í Smáranum – norðankonur einar á toppnum

Emma Karólína Snæbjarnardóttir átti algjöran stórleik þegar Þór Akureyri sótti 106–73 stórsigur gegn Breiðabliki í Smáranum í Bæjarins bestu deild kvenna í dag.

Með þessum öðrum útisigri sínum á suðvesturhorninu um helgina komust norðankonur einar á topp deildarinnar með 16 stig eftir níu leiki, tveimur stigum á undan Þór Þorlákshöfn sem á þó leik til góða.

Emma Karólína var óstöðvandi á báðum endum vallarins á þeim 32 mínútum sem hún spilaði og skilaði 41 stigi, 8 fráköstum og 7 stoðsendingum, auk þess að setja niður bæði þriggja stiga skot sín og skila 47 framlagsstigum. Allir sex leikmennirnir sem komust á blað hjá Þór Akureyri skoruðu átta stig eða meira. Nile Miller skilaði tvennu með 20 stig og 12 fráköst, Ksenija Kuzmanovic skoraði 15 stig og tók 6 fráköst, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl (6 fráköst) og Sigurlaug Eva Jónasdóttir (4 fráköst) skoruðu 11 stig hvor og Karen Lind Helgadóttir bætti við 8 stigum og 4 fráköstum.

Gestirnir frá Akureyri gáfu tóninn strax í fyrsta leikhluta og leiddu 32–22 að honum loknum, en heimakonur í Breiðabliki svöruðu vel í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn niður í fjögur stig fyrir hálfleik, 50–46. Í seinni hálfleik stakk Þór Akureyri hins vegar algjörlega af, vann þriðja leikhluta 24–11 og fjórða leikhluta 32–16 og landaði 33 stiga sigri.

Hjá Breiðabliki, sem situr í 6. sæti deildarinnar með 8 stig, átti Eyrún Hulda Gestsdóttir glæsilegan leik og skilaði risatvennu með 17 stig og 21 frákast. Þórdís Jóna Kristjánsdóttir skoraði 16 stig og Telma Hrönn Loftsdóttir 14, á meðan þær Tinna Diljá Jónasdóttir (7 stig), Margrét Dúna Guðmundsdóttir (7 stig), Hjörtfríður Óðinsdóttir (5 stig), Vilborg Óttarsdóttir (5 stig og 6 fráköst) og Gerður Lind Sverrisdóttir (2 stig) sáu um önnur stig liðsins.

Skotnýtingin skildi liðin að í dag, en Þór Akureyri hitti úr 51% tveggja stiga skota sinna og 43% þriggja stiga skota (10/23) á móti 44% og 27% hjá Breiðabliki, auk þess sem norðankonur töpuðu aðeins 14 boltum gegn 25 hjá heimakonum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -