Íslenska karlalandsliðið hefur lokið keppni í baráttunni um sæti á heimsmeistaramótinu í Katar á næsta ári eftir 99–83 tap gegn toppliði Tyrklands í Turkcell Basketball Development Centre í Istanbúl í dag. Ísland þurfti á sigri að halda til að halda lífi í voninni um farseðil á lokamótið, en með tapinu er ljóst að liðið missir af mótinu.
Lokatölurnar gefa þó alls ekki rétta mynd af því hvernig leikurinn spilaðist lengst af. Ísland veitti heimamönnum harða og hættulega keppni stærstan hluta leiksins, liðin skiptust tíu sinnum á forystunni og jafnt var átta sinnum. Íslenska liðið hélt vel í við feiknasterkt lið Tyrkja allt fram á lokakaflann áður en heimamenn náðu að slíta sig frá undir lokin.
Elvar Már Friðriksson var stigahæstur í íslenska liðinu með 15 stig, en hjá Tyrkjum var Şehmus Hazer atkvæðamestur með 23 stig.
Nánari umfjöllun og tölfræði úr leiknum er væntanleg innan skamms.





