HomeFréttirLandsliðshópur Íslands gegn Tyrklandi klár – leikurinn hefst klukkan 16:00

Landsliðshópur Íslands gegn Tyrklandi klár – leikurinn hefst klukkan 16:00

Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, hefur tilkynnt tólf manna leikmannahóp íslenska karlalandsliðsins sem mætir Tyrklandi í Istanbúl í dag, sunnudaginn 29. nóvember, í undankeppni HM 2027.

Leikurinn fer fram í Turkcell Basketball Development Centre í Istanbúl og hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma, en hann verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Ísland kemur inn í viðureignina eftir frækinn 113–101 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll á fimmtudaginn og freistar þess að ná í dýrmæt stig gegn toppliði J-riðils.

Leikmannahópur Íslands í dag:

  • #3 Ægir Þór Steinarsson
  • #5 Hilmar Smári Henningsson
  • #6 Jón Axel Guðmundsson
  • #9 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson
  • #10 Elvar Már Friðriksson
  • #12 Kári Jónsson
  • #13 Haukur Helgi Pálsson
  • #14 Kristinn Pálsson
  • #15 Martin Hermannsson
  • #18 Sigurður Pétursson
  • #32 Tryggvi Snær Hlinason
  • #34 Styrmir Snær Þrastarson
Fréttir
- Auglýsing -