Útiliðin áttu sviðið í Bæjarins bestu deild kvenna í dag, laugardaginn 28. nóvember, en öllum fjórum leikjum dagsins lauk með öruggum útisigrum.
Þór Akureyri gerði góða ferð í Hafnarfjörð og vann 91–65 sigur á Haukum u. Með sigrinum jafnaði Þór Akureyri topplið Þórs Þorlákshafnar að stigum, en bæði lið eru nú með 14 stig eftir átta leiki. Selfoss fylgir fast á hæla þeirra í 3. sæti með 12 stig eftir 67–50 útisigur gegn Keflavík b.
Þá vann KV stórsigur á stigalausu liði Skallagríms í Borgarnesi, 83–48, og lyfti sér upp í 4. sæti deildarinnar með 8 stig líkt og Haukar u, Breiðablik og Njarðvík b. Njarðvík b nældi sér einmitt í dýrmæt tvö stig í dag með 86–73 útisigri gegn Aþenu.
Úrslit dagsins í Bæjarins bestu deild kvenna:
- Haukar u – Þór Akureyri: 65–91
- Aþena – Njarðvík b: 73–86
- Skallagrímur – KV: 48–83
- Keflavík b – Selfoss: 50–67





