HomeFréttirStyrktaraðili bjargaði málunum fyrir Bosníu

Styrktaraðili bjargaði málunum fyrir Bosníu

Stórstjarnan Džanan Musa verður klár í slaginn með landsliði Bosníu og Hersegóvínu gegn Litháen í Zetra-höllinni í Sarajevo klukkan 17:00 í kvöld í undankeppni HM 2027, eftir að styrktaraðili liðsins steig inn á elleftu stundu.

Þátttaka Musa hafði verið í uppnámi vegna ógreidds 18.400 evra tryggingargjalds – um 2,7 milljóna króna – sem FIBA krafðist til að hann fengi leikheimild. Bosníska sambandið átti ekki fyrir upphæðinni og bauðst Musa sjálfur til að lána fyrir henni, auk þess sem hann kallaði málið „gríðarlega skömm“.

Framkvæmdastjóri sambandsins staðfesti hins vegar að styrktaraðilinn MaxBet hefði tekið að sér að greiða gjaldið. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Bosníu, sem situr á botni J-riðils á eftir Íslandi og þarf nauðsynlega á sigri að halda gegn Litháen í kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -