Franska stórstjarnan Victor Wembanyama segist þegar farinn að hugsa til heimsmeistaramótsins í körfubolta á næsta ári og hefur fulla trú á að Frakkland hafi allt sem þarf til að leggja Bandaríkin að velli.
Frakkar tryggðu sér farseðilinn á HM 2027 í Katar í fyrradag með 81–73 útisigri gegn Eistlandi. Með sigrinum fór Frakkland í átta sigra og eitt tap í Evrópuundankeppninni og varð þar með önnur Evrópuþjóðin á eftir Tyrklandi til að tryggja sér sæti á mótinu.
Wembanyama var ekki með franska liðinu í fyrradag vegna verkefna með San Antonio Spurs í NBA-deildinni, en eftir 99–96 sigur Spurs á Los Angeles Lakers í gærnótt svaraði hann spurningum franskra blaðamanna um landsliðið. Þar tók hinn 22 ára gamli miðherji skýrt fram að hann væri með hugann við mótið í Katar.
„Að sjálfsögðu, að sjálfsögðu,“ sagði Wembanyama þegar hann var spurður hvort hann væri farinn að horfa til HM. „Í fyrsta lagi er markmiðið að vinna hverja einustu keppni með franska landsliðinu. Við vitum líka að þetta er undankeppni fyrir Ólympíuleikana, þannig að við höfum það sannarlega í huga.“
Þegar talið barst að Bandaríkjunum og hvort Frakkar hefðu nægilega breidd og hæfileika til að velgja þeim undir uggum stóð ekki á svörum hjá Wembanyama.
„Ég tel að við höfum það sem þarf til að vinna þá á hverju ári,“ sagði hann fullur sjálfstrausts. „Fyrri kynslóð hefur þegar unnið þá í riðlakeppninni [á Ólympíuleikunum í Tókýó]. En já, auðvitað. Í dag, þegar franska landsliðið mætir til leiks á stórmót, er metnaðurinn ekkert minna en gull.“
Wembanyama lék lykilhlutverk þegar Frakkland komst í úrslitaleik Ólympíuleikanna í París árið 2024 en tapaði þar fyrir Bandaríkjunum og hlaut silfur. Heimsmeistaramótið í Katar fer fram dagana 27. ágúst til 12. september 2027 og gildir jafnframt sem undankeppni fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028.





