HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaHaukar völtuðu yfir KV – Pétur Ingvarsson rekinn út úr húsi eftir...

Haukar völtuðu yfir KV – Pétur Ingvarsson rekinn út úr húsi eftir lokaflautið

Fyrri hálfleikurinn á Meistaravöllum í kvöld var algjör einstefna þegar Haukar sóttu KV heim í 9. umferð Bæjarins bestu deildar karla.

Gestirnir úr Hafnarfirði keyrðu upp hraðann strax frá uppkasti og höfðu náð 37 stiga forskoti í hálfleik, 60–23, eftir að hafa haldið heimamönnum í aðeins fimm stigum í öðrum leikhluta. Þótt KV hafi klórað í bakkann í seinni hálfleik voru úrslitin ráðin og Haukar unnu öruggan 109–79 sigur.

Þrátt fyrir að Haukar væru tugum stiga yfir nánast allan leikinn var Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka, mjög ósáttur við dómaratríóið í kvöld. Svo fór að hann fékk sína aðra tæknivillu eftir að leik lauk og var þar með rekinn út úr húsi.

Pétur yfirgefur húsið

Innan vallar riðu breiddin í liði Hauka og yfirburðir í baráttunni í teignum baggamuninn, en bekkur gestanna skilaði 43 stigum gegn 23 hjá KV auk þess sem Haukar unnu frákastabaráttuna 51–43 og töpuðu aðeins 10 boltum á móti 21 hjá heimamönnum.

Anthony Charles Bryant Jr. fór fyrir sóknarleik Hauka með 22 stig og 5 fráköst, Gerardas Slapikas skoraði 18 stig og Frosti Valgarðsson bætti við 17 stigum. Þá áttu þeir Dominykas Milka (10 stig og 13 fráköst) og Hilmir Hallgrímsson (9 stig og 11 fráköst) stóran þátt í frákastayfirburðum liðsins, á meðan Yngvi Freyr Óskarsson stal 5 boltum.

Hjá KV var Finnur Tómasson stigahæstur með 18 stig, Lars Erik Bragason skoraði 16 stig og gaf 5 stoðsendingar og Óli Gunnar Gestsson átti mjög öflugan leik með tvöfalda tvennu, 15 stig og 11 fráköst.

Með sigrinum eru Haukar áfram í toppbaráttunni í 3. sæti deildarinnar með 16 stig, jafnir ÍA og Þór Þorlákshöfn, á meðan KV situr í 7. sæti með 8 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -