Það var ekkert gefið eftir í AvAir-höllinni á Akranesi í kvöld þegar topplið ÍA tók á móti KFG í 9. umferð Bæjarins bestu deildar karla.
Gestirnir úr Garðabæ mættu ákveðnir til leiks og leiddu í hálfleik, 38–36, en gríðarlegur þriðji leikhluti Skagamanna (32–19) lagði grunninn að 95–87.
Í leik þar sem bæði lið lögðu allt í sölurnar og spennan var mikil allt til loka átti dómaratríóið, þeir Jón Þór Eyþórsson, Sigurbaldur Frímannsson og Frederick Capellan, algjöran toppleik og héldu frábærri línu frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.

Innan vallar var það tvíhöfði ÍA sem dró vagninn svo um munaði. Gojko Sudzum var óstöðvandi í teignum og skoraði 33 stig ásamt því að taka 10 fráköst, á meðan Allen Peter Flanigan bætti við 28 stigum, 6 fráköstum og 5 stoðsendingum. Saman skoruðu þeir félagar 61 af 95 stigum ÍA.
Igor Maric skilaði einnig 13 stigum og 7 fráköstum og Sólvi Ólason stýrði spilinu af mikilli festu með 12 stoðsendingar. Hjá KFG var Hilmir Arnarson stigahæstur með 27 stig, Atli Hrafn Hjartarson skoraði 17 stig og Björn Skúli Birnisson átti góðan leik með 16 stig og 8 stoðsendingar.

Með sigrinum er ÍA áfram á toppi Bæjarins bestu deildarinnar með 16 stig, jafnt Þór Þorlákshöfn og Haukum að stigum, en KFG situr í 6. sæti með 10 stig.
Myndasafn (Jónas H. Ottósson)





