HomeBónus deildinBónus deild kvennaGrindavík heldur sigurgöngu sinni áfram – Haukar og KR með sterka útisigra

Grindavík heldur sigurgöngu sinni áfram – Haukar og KR með sterka útisigra

Fjórir leikir fóru fram í 7. umferð Bónusdeildar kvenna í körfubolta í kvöld þar sem Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar.

Grindavík lagði Stjörnuna að velli í toppslagnum í Grindavík, 96–81, og er enn ósigrað á toppnum með 14 stig eftir sjö leiki. Í IceMar höllinni unnu Haukar spennandi 98–94 útisigur gegn Njarðvík og komust þar með upp í annað sæti deildarinnar með 10 stig, jafnmörg og Stjarnan og KR.

KR sótti einnig dýrmæt stig á útivelli með 103–94 sigri gegn Keflavík í Blue-höllinni, en Keflavík situr áfram í áttunda sæti með 2 stig. Á Sauðárkróki hafði Tindastóll svo betur gegn Ármanni, 81–72, og fór upp í 6 stig í sjöunda sæti á meðan Ármann er enn án stiga í níunda sætinu.

Úrslit kvöldsins í Bónusdeild kvenna:

  • Njarðvík 94 – 98 Haukar
  • Grindavík 96 – 81 Stjarnan
  • Keflavík 94 – 103 KR
  • Tindastóll 81 – 72 Ármann
Fréttir
- Auglýsing -