Árlega Jólamót Vals í körfubolta, sem haldið er í samstarfi við Colgate og Rent-A-Party, fer fram á Hlíðarenda helgina 5.–6. desember. Mótið er ætlað iðkendum í minnibolta, 5 til 9 ára.
Leikið er samkvæmt reglugerð KKÍ um minniboltamót þar sem 5 ára og yngri (krílabolti) spila blandað 3 gegn 3, 6–7 ára leika 3 gegn 3 og 8–9 ára leika 4 gegn 4. Strákar og krílaboltinn spila á laugardeginum 5. desember en stelpur spila á sunnudeginum 6. desember.
Hver leikur er 1 x 12 mínútur og fá öll lið að minnsta kosti þrjá leiki á mótinu. Þátttökugjald er 3.800 krónur á hvern iðkanda og fá allir þátttakendur verðlaunapening og glaðning frá Colgate í lok móts, auk þess sem veislusalnum verður breytt í jólaveislu.
Skráning á mótið fer fram á vef Vals (valur.is) og stendur til og með miðvikudagsins 25. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Ágúst yfirþjálfari í gegnum netfangið [email protected].




