HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild kvennaÞrír leikir í Bæjarins beztu deild kvenna í dag – stórslagur á...

Þrír leikir í Bæjarins beztu deild kvenna í dag – stórslagur á Akureyri

Þrír leikir fara fram í 1. deild kvenna, Bæjarins beztu deildinni, í dag, laugardaginn 21. nóvember.

Dagskráin hefst klukkan 16:00 þegar Njarðvík b tekur á móti Haukar u í Njarðvík. Haukar u sitja í fjórða sæti deildarinnar með 8 stig eftir sex leiki á meðan Njarðvík b er í tíunda sæti með 4 stig.

Klukkan 18:00 hefjast svo tveir leikir. Í Breiðholti mætast ÍR (8. sæti með 4 stig) og Breiðablik (7. sæti með 6 stig), en á sama tíma eigast við Þór Akureyri og Selfoss í sannkölluðum toppslag á Akureyri. Bæði lið eru með 10 stig eftir sex leiki í öðru og þriðja sæti deildarinnar og getur sigurliðið jafnað topplið Þórs Þorlákshafnar að stigum.

Leikir dagsins í Bæjarins beztu deild kvenna:

  • Njarðvík b – Haukar u kl. 16:00
  • ÍR – Breiðablik kl. 18:00
  • Þór Ak – Selfoss kl. 18:00

Leikir dagsins eru í beinni útsendingu KKÍ TV

Fréttir
- Auglýsing -