Skallagrímur er áfram í næstneðsta sæti Bæjarins beztu deildar karla með 2 stig eftir 104–91 tap gegn Breiðabliki í Smáranum í kvöld. Lærisveinar Pálma lentu í miklu basli í fyrri hálfleik og voru 23 stigum undir í hálfleik, 52–29, en náðu þó að laga stöðuna töluvert í seinni hálfleik án þess að ógna sigri heimamanna að ráði.
Rætt var við Pálma Sævarsson um leikinn í Smáranum í viðtalinu hér að neðan.




