HomeBónus deildinBónus deild karlaSögulegt kvöld á Höfn: Sindri vann sinn fyrsta leik í efstu deild...

Sögulegt kvöld á Höfn: Sindri vann sinn fyrsta leik í efstu deild frá upphafi

Sindri skráði sig í sögubækurnar í kvöld þegar liðið vann sinn allra fyrsta sigur í efstu deild karla frá upphafi, 107–101, gegn Njarðvík í Ice Lagoon höllinni á Höfn.

Hornfirðingar leika í fyrsta sinn í efstu deild á þessu tímabili og höfðu tapað fyrstu sex leikjum sínum í Bónusdeildinni fyrir viðureign kvöldsins.

Njarðvíkingar byrjuðu betur og leiddu með þremur stigum eftir fyrsta leikhluta, 25–22. Heimamenn svöruðu hins vegar af miklum krafti í öðrum leikhluta, sem þeir unnu 36–25, og höfðu átta stiga forskot í hálfleik, 58–50. Sindri hélt áfram að bæta við forskotið í þriðja leikhluta (31–21) og náði mest 19 stiga forystu snemma í fjórða leikhluta. Njarðvík gerði harða atlögu á lokakaflanum og vann lokaleikhlutann 30–18, en heimamenn héldu haus og fögnuðu þessum sögulega sigri innilega í leikslok.

Ótrúleg þriggja stiga nýting Sindra skipti sköpum í kvöld, en liðið setti niður 15 af 22 þriggja stiga skotum sínum (68%) gegn 13 þristum Njarðvíkur (41%). Þá unnu Hornfirðingar frákastabaráttuna 42–30 og bekkurinn hjá Sindra skilaði 28 stigum gegn 11 hjá gestunum.

Kaleb Higgins var stórkostlegur í liði Sindra og fór fyrir sínum mönnum með 34 stig, 8 fráköst og 10 stoðsendingar. Branislav Vujadinovic skoraði 22 stig, Lazar Grbovic bætti við 16 stigum af bekknum, Gísli Þórarinn Hallsson skoraði 12 stig og Martins Meiers 11 stig, á meðan Magnús Dagur Svansson tók 9 fráköst.

Hjá Njarðvík var Makye Richards stigahæstur á vellinum með 36 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar. Spencer Svejcar skoraði 19 stig, David Okeke var með 18 stig og Brynjar Kári Gunnarsson skilaði 10 stigum og 7 stoðsendingum.

Með þessum fyrsta sigri í efstu deild fer Sindri upp í tíunda sæti Bónusdeildar karla með 2 stig og jafnar þar með bæði Njarðvík og ÍR að stigum, en Ármann situr eitt á botninum án stiga.

Tölfræði leiks

Mynd / Sindramyndir

Fréttir
- Auglýsing -