HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaSnýr aftur í Hamar og leikur með liðinu í kvöld

Snýr aftur í Hamar og leikur með liðinu í kvöld

Hamar tilkynnti í dag að gríski miðherjinn Fotios Lampropoulos hafi gengið til liðs við félagið á nýjan leik. Lampropoulos er öllum hnútum kunnugur í Hveragerði eftir að hafa leikið með liðinu áður og kemur beint inn í hópinn fyrir leik Hamars gegn Snæfelli í Bæjarins Beztu deild karla í kvöld.

Haddi, þjálfari Hamars, lýsti yfir mikilli ánægju með tíðindin í tilkynningu félagsins og sagði það mikið fagnaðarefni að jafn góður og reynslumikill Hamarsmaður hafi verið á lausu og ákveðið að snúa aftur í Frystikistuna.

Hamar situr í áttunda sæti Bæjarins Beztu karla með 4 stig eftir sjö umferðir, en leikur liðsins gegn Snæfelli í Hveragerði hófst klukkan 19:15 í kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -