Hilmar Pétursson kallaður inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Bosníu og Tyrklandi
Þjálfarateymi A-landsliðs karla í körfuknattleik hefur gert eina breytingu á æfingahópi sínum fyrir komandi leiki í undankeppni HM í Katar 2027, en Keflvíkingurinn Hilmar Pétursson bætist í hópinn sem telur nú 16 leikmenn.
Hópurinn kemur saman til æfinga nú á sunnudaginn og undirbýr sig fyrir tvo krefjandi leiki í næstu viku. Fyrri leikurinn er síðasti heimaleikur ársins, gegn Bosníu í Laugardalshöll fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 19:30. Daginn eftir heldur liðið til Tyrklands þar sem lokaleikur ársins fer fram gegn heimamönnum í Istanbúl sunnudaginn 29. nóvember klukkan 16:00 að íslenskum tíma.
Æfingahópur A-landsliðs karla:
- Bjarni Guðmann Jónsson – Stjarnan (10 landsleikir)
- Bragi Guðmundsson – Keflavík (4 landsleikir)
- Elvar Már Friðriksson – Neptunas Klaipeda (93 landsleikir)
- Haukur Helgi Pálsson – Álftanes (85 landsleikir)
- Hilmar Pétursson – Keflavík (4 landsleikir)
- Hilmar Smári Henningsson – Stjarnan (39 landsleikir)
- Jón Axel Guðmundsson – Gran Canaria (53 landsleikir)
- Kári Jónsson – Valur (50 landsleikir)
- Kristinn Pálsson – HLA Alicante (54 landsleikir)
- Martin Hermannsson – Alba Berlin (93 landsleikir)
- Ragnar Ágústsson – Tindastóll (2 landsleikir)
- Sigurður Pétursson – Álftanes (8 landsleikir)
- Styrmir Snær Þrastarson – Rapid Bucuresti (39 landsleikir)
- Tryggvi Snær Hlinason – Bilbao Basket (88 landsleikir)
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR (36 landsleikir)
- Ægir Þór Steinarsson – Stjarnan (105 landsleikir)
Þjálfari liðsins er Craig Pedersen og honum til aðstoðar eru Baldur Þór Ragnarsson og Viðar Örn Hafsteinsson, en Arnór Gauti Ragnarsson er styrktarþjálfari.




