HomeBónus deildinBónus deild karlaTveir leikir í Bónusdeild karla í dag – toppslagur í Keflavík og...

Tveir leikir í Bónusdeild karla í dag – toppslagur í Keflavík og fallbarátta á Höfn

Sjöundu umferð Bónusdeildar karla lýkur í dag, föstudaginn 20. nóvember, með tveimur áhugaverðum viðureignum áður en deildin fer í landsleikjahlé.

Fyrri leikur dagsins hefst klukkan 19:00 þegar Sindri tekur á móti Njarðvík á Höfn í Hornafirði. Bæði lið þurfa nauðsynlega á stigum að halda í neðri hluta deildarinnar, en Sindri situr í ellefta sæti án stiga eftir fyrstu sex umferðirnar á meðan Njarðvík er í níunda sæti með tvö stig.

Klukkan 19:30 mætast svo Keflavík og Tindastóll í Blue-höllinni í Keflavík. Tindastóll getur með sigri jafnað Álftanes að stigum í öðru sæti deildarinnar en Stólarnir eru í þriðja sæti með tíu stig. Keflvíkingar eru í sjöunda sæti með átta stig og gætu teflt fram nýjasta liðsmanni sínum, Ingva Þór Guðmundssyni, í fyrsta sinn í kvöld eftir að hann fékk leikheimild með félaginu í gær.

Leikir dagsins í Bónusdeild karla:

  • Sindri – Njarðvík kl. 19:00
  • Keflavík – Tindastóll kl. 19:30
Fréttir
- Auglýsing -