Höttur vann frábæran og dramatískan tveggja stiga heimasigur gegn Val í 7. umferð Bónusdeildar karla í Varðarhöllinni á Egilsstöðum í kvöld, 94–92, frammi fyrir 545 áhorfendum.
Valsmenn urðu að leika án bandaríska leikmannsins Jelani Simmons í leiknum eftir að hann klúðraði fluginu austur í hádeginu og mætti á rangan flugvöll.
Simmons, sem býr í Valshverfinu alveg við Reykjavíkurflugvöll, hélt að flogið yrði frá Keflavíkurflugvelli og fór þangað í staðinn, með þeim afleiðingum að hann missti af vélinni og varð eftir í bænum. Það munaði um minna fyrir gestina en Simmons hefur verið lykilmaður í liði Vals og skoraði meðal annars 22 stig í síðasta leik liðsins.
Heimamenn nýttu sér fjarveru hans í byrjun leiks, mættu af miklum krafti, náðu mest 15 stiga forystu í fyrsta leikhluta og leiddu með tíu stigum að honum loknum, 27–17. Valsmenn svöruðu hins vegar af hörku í öðrum leikhluta sem þeir unnu 31–20 og höfðu eins stigs forskot í hálfleik, 48–47. Í seinni hálfleik skiptust liðin á að leiða, en Höttur náði frumkvæðinu á ný í fjórða leikhluta og tókst að standast áhlaup Valsmanna á lokamínútunum.
Það sem skildi liðin að í kvöld var fyrst og fremst þriggja stiga nýting og framlag bekkjarins. Höttur setti niður 17 þriggja stiga körfur í 37 tilraunum (45%) gegn 12 þristum Vals (42%), auk þess sem varamenn Hattar skoruðu 17 stig gegn aðeins 4 stigum af bekk Vals.
Marquis Jackson var atkvæðamestur í liði Hattar með 27 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar, Obadiah Nelson Trotter skoraði 21 stig, Adam Eiður Ásgeirsson bætti við 12 stigum, Joshua James Martin skilaði 11 stigum og 14 fráköstum og Aleksandar Pantelic skoraði 10 stig.
Hjá Val var Dwayne Lautier-Ogunleye stigahæstur með 28 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar, Atli Freyr Haraldsson Katrínarson skoraði 22 stig og tók 4 fráköst og Kári Jónsson skoraði 21 stig.
Með sigrinum fer Höttur upp í 6 stig í áttunda sæti deildarinnar en Valur situr í fjórða sæti með 10 stig eftir sitt annað tap í röð.




