Tryggvi Snær Hlinason tók tíu fráköst, skoraði átta stig og gaf tvær stoðsendingar á 22 mínútum þegar Bilbao lá gegn Murcia á heimavelli, 76–84, í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Þetta var annar tapleikur Bilbao í röð í deildinni en liðið situr nú í níunda sæti með átta stig.




