Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mættu þeir Höggið Heiðar Snær og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og fóru yfir allt það helsta.
Félagarnir fara ítarlega yfir frábæra frammistöðu A-landsliðs kvenna, sem hefur landað tveimur glæsilegum sigrum á síðustu viku, ásamt því að rýna í komandi landsliðsverkefni karlalandsliðsins sem tekur við strax að lokinni næstu umferð í Bónusdeild karla. Í því samhengi velta þeir upp stórri spurningu: Hvaða leikmenn eru súrastir yfir því að hafa ekki fengið kallið í landsliðshópinn að þessu sinni?
Þá eru málefni Ármanns og KR tekin fyrir af fullum þunga. Rætt er um brotthvarf Ingva frá Ármanni og hvað tekur við hjá liðinu, á meðan sérfræðingarnir setja saman sérstakan óskalista yfir sex bandaríska leikmenn sem KR-ingar ættu að skoða til að fylla skarðið í kanalaust lið sitt.
Að lokum er kíkt yfir í Bæjarins Beztu deild kvenna þar sem farið er yfir þá leikmenn sem hafa farið best af stað í upphafi tímabils.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.




