HomeFréttirÞetta var stórkostlegur leikur

Þetta var stórkostlegur leikur

Ísland vann glæsilegan sigur á Sviss, 100–82, í öðrum leik sínum í undankeppni EuroBasket 2029 í Hafnarfirði í dag og situr nú eitt á toppi A-riðils.

Íslenska liðið spilaði frábæran liðsbolta allan leikinn og kláraði fjórða leikhlutann af miklum krafti. Rebekka Steingrímsdóttir átti mjög öflugan leik fyrir Ísland og skilaði 20 stigum, 4 fráköstum, 5 stoðsendingum og 5 stolnum boltum.

Viðtal við Rebekku Steingrímsdóttur, leikmann Íslands, eftir leik má sjá í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -