Breiðablik mátti þola níu stiga tap á útivelli gegn Selfossi, 99–90, þegar liðin mættust í sjöundu umferð Bæjarins bestu deildar karla í kvöld.
Blikar lentu tólf stigum undir í fyrri hálfleik en sýndu mikinn karakter í þriðja leikhluta þegar þeir snéru taflinu við og komust yfir, 70–75, áður en heimamenn tóku völdin á ný í lokafjórðungnum þrátt fyrir 41 stig frá Adrian Darren McIntyre.
Viðtal við Hrafn Kristjánsson, þjálfara Breiðabliks, eftir leik má sjá í spilaranum hér að neðan.
Viðtal / Tómas Kárason




