HomeÚti í heimiEvrópaFjórði sigur Tindastóls í röð í Evrópukeppninni eftir frábæran varnarleik í Síkinu

Fjórði sigur Tindastóls í röð í Evrópukeppninni eftir frábæran varnarleik í Síkinu

Tindastóll heldur sigurgöngu sinni áfram í riðlakeppni ENBL-deildarinnar í körfuknattleik eftir tíu stiga heimasigur á svissneska liðinu Pully Lausanne Foxes, 79–69, í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Sigurinn er sá fjórði í röð hjá Stólunum í keppninni, en liðið hafði áður unnið fyrstu þrjá útileiki sína á meðan svissnesku gestirnir voru enn án sigurs.

Heimamenn fóru betur af stað í leiknum en misstu fljótlega tökin og lentu ellefu stigum undir. Þá tók við stórkostlegur varnarleikur hjá Tindastóli sem hreinlega lokaði á sóknarleik gestanna og hélt þeim í 22 stigum í hátt í átta mínútur á meðan Stólarnir gengu á lagið og tóku forystuna á ný.

Tindastóll hélt forystunni út þriðja leikhluta en mætti afar slakur til leiks í fjórða leikhluta og lenti fljótlega undir á nýjan leik. Líkt og fyrr í leiknum tóku heimamenn sig hins vegar saman í andlitinu í vörninni á lokasprettinum, snéru leiknum sér í vil og lönduðu að lokum öruggum tíu stiga sigri þrátt fyrir að gestirnir hafi skorað síðustu tvær körfur leiksins.

Nemanja Djurisic fór fyrir Tindastóli í kvöld, en hann var bæði stigahæstur og frákastahæstur í liðinu með 17 stig og 8 fráköst. Ragnar Ágústsson átti einnig fínan leik og skoraði 13 stig og þeir Arnar Björnsson og Ade Murkey bættu við 11 stigum hvor.

Myndasafn

Fréttir
- Auglýsing -