HomeNeðri deildir2. deild karlaLeikir dagsins: KFG getur jafnað toppliðin í Bæjarins Beztu deild karla

Leikir dagsins: KFG getur jafnað toppliðin í Bæjarins Beztu deild karla

Sex leikir fara fram á körfuboltafjölunum í dag þar sem keppt verður í Bæjarins Beztu deild karla, Bæjarins Beztu deild kvenna og 2. deild karla.  

Í Bæjarins Beztu deild karla tekur Þór Akureyri á móti KFG í Höllinni á Akureyri klukkan 16:00. Með sigri geta Garðbæingar náð tíu stigum og jafnað ÍA og Þór Þorlákshöfn í 2.–4. sæti deildarinnar, en Haukar tróna á toppnum með tólf stig. Þórsarar freista þess hins vegar að rétta sinn hlut eftir einn sigur í fyrstu fimm leikjunum.  

Í Bæjarins Beztu deild kvenna mætast ÍR og ungmennalið Hauka í Breiðholti klukkan 18:00. Haukar u geta jafnað Selfoss og Þór Akureyri með átta stig í öðru sæti með sigri, en ÍR leitar að sínum öðrum sigri á leiktíðinni.  

Í 2. deild karla er boðið upp á fjóra leiki. Klukkan 15:00 tekur ungmennalið Njarðvíkur á móti Létti í B-riðli, Máni og Fylkir mætast í A-riðli klukkan 15:40, ungmennalið Selfoss fær Aftureldingu í heimsókn klukkan 18:00 og klukkan 19:00 eigast Vængir Júpíters og Augnablik við í B-riðli.  

Bæjarins Beztu deild karla

Þór Ak. – KFG kl. 16:00  

Bæjarins Beztu deild kvenna

ÍR – Haukar u kl. 18:00  

2. deild karla

Njarðvík u – Léttir kl. 15:00  

Máni – Fylkir kl. 15:40  

Selfoss u – Afturelding kl. 18:00  

Vængir Júpíters – Augnablik kl. 19:00

Fréttir
- Auglýsing -