HomeBónus deildinBónus deild karlaOrðið á götunni: Er Ólafur Björn búinn að yfirgefa Keflavík?

Orðið á götunni: Er Ólafur Björn búinn að yfirgefa Keflavík?

Samkvæmt heimildum hefur Ólafur Björn Gunnlaugsson yfirgefið herbúðir Keflavíkur og leitar sér nú að nýju liði í Bónus deild karla.

Málið bar fyrst á góma í nýjasta þætti hlaðvarpsins Run and Gun, en samkvæmt heimildum hefur brotthvarf hans jafnframt verið staðfest af forráðamönnum Keflavíkur nú fyrir helgina.

Ólafur Björn gekk til liðs við Keflavík fyrir síðasta tímabil og hefur skipað stóran sess í leik liðsins í vetur sem byrjunarliðsmaður, þar sem hann hefur spilað rúmlega 20 mínútur að meðaltali í leik.

Ástæður þess að hann kveður Suðurnesjaliðið á þessum tímapunkti eru ókunnar og sömuleiðis er óljóst hvert næsta skref hans á körfuboltaferlinum verður, en áhugavert verður að sjá hvaða lið nælir í leikmanninn öfluga á næstu dögum.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -