KV nældi í mikilvægan útisigur í 1. deild karla í kvöld þegar liðið lagði Fjölni að velli, 96–89, í Dalhúsum. Með sigrinum lyftir Vesturbæjarliðið sér upp í sex stig og jafnar Selfoss að stigum í miðri deild, á meðan Fjölnismenn sitja áfram í næstneðsta sæti með tvö stig eftir sex leiki.
Heamamenn í Fjölni byrjuðu betur og náðu mest átta stiga forystu snemma leiks, en gestirnir svöruðu fyrir sig og leiddu með tveimur stigum eftir fyrsta leikhluta, 22–20.
Í öðrum leikhluta náði KV góðu frumkvæði þar sem sóknarleikur liðsins gekk smurt; gestirnir skoruðu 33 stig í leikhlutanum og fóru með tíu stiga forystu til búningsklefa, 55–45.

Fjölnir beit frá sér í síðari hálfleik og saxaði á forskotið á lokasprettinum, en KV sýndi mikla seiglu og hélt heimamönnum í skefjum með góðri skotnýtingu (50% af velli og 90% á vítalínunni).

Lars Erik Bragason fór mikinn hjá KV með 28 stig og 6 fráköst, en Árni Þrastarson skilaði glæsilegri tvennu með 22 stigum, 13 fráköstum og 5 stoðsendingum. Sturla Böðvarsson bætti við 14 stigum fyrir gestina.

Hjá Fjölni átti Lewis Junior Diankulu stórkostlegan leik og var með 35 stig, 15 fráköst, 7 stolna bolta, 5 stoðsendingar, 3 varin skot og heil 51 framlagsstig. Guðlaugur Heiðar Davíðsson átti sömuleiðis fína tvennu með 18 stigum og 10 stoðsendingum og Rafn Kristján Kristjánsson skilaði 13 stigum.
Myndasafn (Gunnar Jónatans)




