HomeBónus deildinBónus deild karlaSterkur útisigur á Hornafirði eftir kipp í fjórða leikhluta

Sterkur útisigur á Hornafirði eftir kipp í fjórða leikhluta

Valur hélt óslitnu sigurgengi sínu áfram í Bónus deild karla í kvöld með 86–73 útisigri á Sindra í Ice Lagoon höllinni. Hlíðarendaliðið er því enn taplaust eftir fimm leiki og vermir toppsætið ásamt KR, en nýliðar Sindra bíða enn eftir sínum fyrsta sigri.  

Leikurinn var í járnum framan af þar sem heimamenn veittu harða mótspyrnu. Valur hafði undirtökin eftir fyrsta leikhluta, 25–19, en Sindramenn bitu frá sér í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn í fjögur stig fyrir hlé, 48–44. Mikil varnarbarátta einkenndi þriðja leikhlutann þar sem lítið var skorað og Valur leiddi áfram naumlega, 61–56.  

Í fjórða leikhluta reyndist breidd gestanna hins vegar of mikil fyrir heimamenn. Valsmenn lokuðu vörninni, unnu leikhlutann 25–17 og tryggðu sér verðskuldaðan þrettán stiga sigur. Frákastayfirburðir Vals voru miklir, 48 gegn 33, auk þess sem liðið nýtti vítaskotin sín mun betur (75% gegn 40%).  

Dwayne Lautier-Ogunleye var frábær hjá Val með 27 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar, en Jelani Earl Simmons bætti við 19 stigum og Kristófer Acox skoraði 10 stig og tók 7 fráköst. Kári Jónsson dreifði spilinu vel og skilaði 9 stigum, 8 stoðsendingum og 6 fráköstum. Hjá Sindra fór Martins Meiers fyrir sínum mönnum með 26 stig, Gísli Þórarinn Hallsson skoraði 15 stig og Kaleb Lamar Higgins skilaði tvennu með 10 stigum og 11 stoðsendingum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -