HomeFréttirNeitar að ræða úrslitaeinvígið

Neitar að ræða úrslitaeinvígið

Þrátt fyrir flotta byrjun San Antonio Spurs á leiktíðinni er franska ofurstjarnan Victor Wembanyama enn afar sleginn yfir tapinu gegn New York Knicks í úrslitum NBA-deildarinnar síðastliðið vor og neitar alfarið að ræða einvígið.

Þetta opinberaði franski blaðamaðurinn Maxime Aubin hjá L’Équipe, sem fylgt hefur Wembanyama náið í San Antonio. Samkvæmt heimildum hans frá þeim sem næstir eru leikmanninum er vonbrigðunum alls ekki gleymt.

„Ég ræddi við fólkið í kringum hann og umboðsmennina, og þau sögðu einfaldlega að hann vildi alls ekki ræða úrslitin. Frá því sem ég skil þá svíður honum enn gríðarlega það sem gerðist í úrslitaeinvíginu og hann er ekki tilbúinn að ræða það enn sem komið er,“

Aubin benti jafnframt á að sumarið hefði reynst Wembanyama óvenju stutt og krefjandi. Úrslitaeinvígið teygði sig fram í miðjan júní og í kjölfarið tók við landsliðsverkefni með Frökkum, sem gaf honum lítinn tíma til að hlaða batteríin fyrir nýtt tímabil. Að auki hafi ástandið heima í Frakklandi og mótmæli unga fólksins haft mikil áhrif á hann, en leikmaðurinn fann fyrir því að vilja vera til staðar heima sem rödd fyrir ungu kynslóðina.

Wembanyama fór hægt af stað í fyrsta leik tímabilsins en hefur farið í gang síðan og er með 28,0 stig, 10,7 fráköst, 3,0 stoðsendingar og 4,2 varin skot að meðaltali í leik með Spurs.

Fréttir
- Auglýsing -