HomeNeðri deildir1. deild karlaHeima - Sigur á Skaganum

Heima – Sigur á Skaganum

Hátíðin Heima – Skagi er í hámarki þessa helgina á Akranesi og við hæfi að ÍA ætti heimaleik þennan föstudaginn. Það voru Hamarsmenn úr Hveragerði sem heimsóttu ÍA á Akranes í 5. umferð 1. deildar þetta kvöldið.  

Heimamenn sátu á toppi deildarinnar fyrir umferðina með fullt hús stiga með fjóra sigra í röð. Hamar var um miðja deild með tvo sigra og tvö töp. Hamar hafði ekki náð að tengja tvo sigra í röð fyrir leikinn en að sama skapi hafði ÍA ekki tapað leik.

Hamarsmenn byrjuðu leikinn betur, þristarnir voru að detta og Skagamenn áttu erfitt með að ná stoppi á sama tíma og þeir þurftu að hafa meira fyrir sínum körfum. ÍA náði sér smám saman á strik og komst í fyrsta skipti yfir í leiknum um miðjan fyrsta leikhluta. Leikurinn hélt áfram að þróast á sama veg það sem eftir lifði leikhlutans og ÍA leiddi að honum loknum, 25–19.

Hvergerðingar komu vel stemmdir inn í annan leikhluta og nálguðust ÍA trekk í trekk með áhlaupum sínum. En í hvert sinn sem munurinn var kominn niður í eina körfu þá annaðhvort tóku Skagamenn við sér og héldu forskotinu eða hvorugu liðinu tókst að finna körfu. En eitthvað hlaut undan að láta og Hamar náði forystunni þegar um 40 sekúndur voru eftir af fyrri hálfleik og voru yfir allt þar til villa var dæmd á Hamar þegar lokaflautið gall og ÍA kláraði hálfleikinn með tveimur vítaskotum. Það var kannski í takt við þennan fyrri hálfleik að aðeins annað vítaskotið fór niður og staðan í hálfleik því jöfn, 43–43.

Seinni hálfleikur fór rólega af stað. ÍA var þó alltaf rúmlega skrefinu á undan og í stöðunni 54–48 er dæmd fjórða villan á leikmann Hamars og tæknivilla í kjölfarið á bekkinn vegna mótmæla. Við það fór leikurinn meira ÍA megin, hitnaði aðeins í kolunum en ekkert sem leikurinn mátti ekki við og að loknum þriðja leikhluta leiddu heimamenn, 73–59.

Það má segja að leikurinn hafi svo fjarað út í fjórða leikhluta og stóð þar hæst frammistaða yngri leikmanna sem fengu að klára leikinn. Niðurstaðan var Heima – Sigur Skagamanna, 99–80.  

Framlagspunktar leikmanna

ÍA:

 Gojko Sudzum: 23 stig, 12 fráköst (tvöföld tvenna)

 Sölvi Ólason: 21 stig, 10 stoðsendingar og 6 fráköst (tvöföld tvenna)

 Igor Maric: 14 stig, 50% þriggja stiga nýting (3/6)

Hamar:

 Lúkas Aron Stefánsson: 20 stig, 5 fráköst, 67% þriggja stiga nýting (2/3)

 Joshua Hardiman: 17 stig, 9 fráköst, 2 varin skot

 Jose Medina Aldana: 15 stig, 6 fráköst, 5 stoðsendingar

Athyglisverðir punktar úr leiknum

 ÍA heldur sigurgöngu sinni áfram í deildinni: 5 leikir – 5 sigrar.  

 Fyrsti leikur ÍA í deildinni þar sem liðið skorar minna en 100 stig.  

 Hamar hefur hvorki unnið né tapað tveimur leikjum í röð í deildinni: 2 sigrar, 3 töp.  

 ÍA var yfir í öllum helstu tölfræðiþáttum leiksins nema í stigum eftir sóknarfráköst.

 Bæði lið notuðu leikmenn fædda árið 2011.

Umfjöllun / HGH

Fréttir
- Auglýsing -