Skráning er hafin í körfuboltabúðirnar Dino Basketball Camp, sem fara fram á eyjunni Rab í Króatíu. Búðirnar eru ætlaðar ungum leikmönnum fæddum á árunum 2008–2013 sem vilja bæta færni sína og sækja alþjóðlega reynslu í krefjandi umhverfi.
Á dagskránni eru faglegar körfuboltaæfingar, leikir í Sumardeild (Summer League), skoðunarferðir um aðliggjandi eyjar og fræðslunámskeið um næringu og líkamlegan undirbúning íþróttafólks. Einnig er boðið upp á sérstaka dagsferð fyrir foreldra út í eyjuna Lošinj á meðan á æfingum stendur.
Þjálfarateymið
Í þjálfarateymi búðanna eru reyndir þjálfarar úr íslenska boltanum sem og erlendir sérfræðingar:
- Dino Stipcic: Yfirþjálfari og stjórnandi búðanna, aðalþjálfari U-15 ára landsliðs Íslands og U-16 þjálfari Breiðabliks, með yfir 15 ára reynslu sem atvinnumaður og FIBA-þjálfararéttindi.
- Mikael Máni Hrafnsson: Aðstoðarþjálfari og færniþjálfari, með hæstu þjálfaragráður KKÍ og FIBA, aðstoðarþjálfari meistaraflokks Breiðabliks og U-18 ára landsliðs Íslands.
- Ögmundur Árni: Aðstoðarþjálfari U-15 og U-16 ára landsliða Íslands með mikla reynslu af yngri flokka starfi.
- Óskar Þór Þorsteinsson: Aðalþjálfari meistaraflokks ÍA og þjálfari hjá yngri landsliðum Íslands.
- Alþjóðlegir gestaþjálfarar: Í teyminu eru einnig Inja Butina, Luka Anzulović, Vasily Mchedlishvili, Andrej Štimac, Eugen Tončinić og Siniša Štemberger.
Tímabil og skráning
Búðirnar fara fram á tveimur vikum:
- Vika 1: 11./12. júní – 18./19. júní
- Vika 2: 18./19. júní – 25./26. júní
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og skrá þátttakendur:
- Vefsíða: www.dinobasketballcamp.com
- Netfang: [email protected] eða [email protected]
- Sími: +354 662 1089
- Instagram / Facebook: @dinobasketballcamp





