Haukar héldu ótrúlegu skriði sínu áfram í 1. deild karla og fögnuðu stórsigri í Höllinni á Akureyri í kvöld þegar liðið lagði Þór að velli, 100–126. Haukamenn voru sjóðheitir í sóknarleiknum og unnu sinn fimmta sigur í jafnmörgum leikjum, sem tryggir þeim toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga.
Rætt var við Pétur Ingvarsson, þjálfara Hauka, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.





