HomeBónus deildinBónus deild karlaMargir ráku upp stór augu í Vesturbænum: Lykilleikmaður fjarverandi vegna herskyldu í...

Margir ráku upp stór augu í Vesturbænum: Lykilleikmaður fjarverandi vegna herskyldu í heimalandinu

Margir körfuboltaáhugamenn ráku upp stór augu í Vesturbænum í kvöld þegar Rafael Lanaras virtist hvergi sjáanlegur í leikmannahópi KR gegn nýliðum Sindra í Bónus deild karla, en búist hafði verið við því að gríski bakvörðurinn yrði í stóru hlutverki á parketinu.  

Ástæða fjarverunnar kom flestum í opna skjöldu, en Lanaras þurfti að leggja land undir fót og halda til heimalands síns, Grikklands, til að sinna herskyldu. Um er að ræða stutt erindi þar sem hann þurfti að staðfesta sig og ganga frá nauðsynlegum embættis- og formatriðum gagnvart gríska hernum.

KR-ingar unnu leikinn, 107–102, eftir harða baráttu gegn Sindra og þurfa stuðningsmenn liðsins ekki að örvænta lengi. Lanaras er ekki meiddur, ferðinni er lokið og er hann á leiðinni aftur til landsins þar sem hann verður samkvæmt heimildum með KR í næsta deildarleik.

Fréttir
- Auglýsing -