HomeNeðri deildir1. deild karlaAukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin...

Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir Jón Frí og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og taka stöðuna eftir enn eina viðburðaríka viku.

Farið er ítarlega yfir leiki síðustu umferðar í Bónusdeild karla og heitustu fréttir vikunnar reifaðar. Sérstök rýni er lögð á sóknarleik liðanna á hálfum velli (half-court offense) – hvaða lið eru að keyra kerfin sín af bestu nákvæmninni og hver eru í vandræðum þegar hraðaupphlaupin eru tekin í burtu. Þá beina félagarnir sjónum sínum að 1. deild karla og stilla upp lista yfir þá leikmenn sem hafa sýnt það mikil gæði að þeir gætu vel spilað í Bónusdeildinni og eiga skilið að fá tækifæri á stóra sviðinu.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -