HomeBónus deildinBónus deild karlaDavid Okeke semur við Njarðvík – Fotios kveður Ljónagryfjuna 

David Okeke semur við Njarðvík – Fotios kveður Ljónagryfjuna 

Njarðvík hefur náð samkomulagi við ítalska miðherjann David Okeke um að leika með liðinu í Bónus deild karla. Okeke hefur áður leikið með Keflavík, Haukum og Álftanesi hér á landi. Við komu hans er ljóst að gríski reynsluboltinn Fotios Lampropoulos kveður félagið eftir að hafa spilað þrjá leiki í upphafi móts vegna meiðslavandræða í hópnum.

Nafn Okeke hafði mikið verið orðað við Njarðvík en Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari liðsins, vísaði því á bug í viðtali við Körfuboltakvöld eftir síðasta leik:

„Hann er ekki leikmaður Njarðvíkur eins og staðan er akkúrat núna og er ekki svo ég viti til á Íslandi,“ sagði Rúnar þá við Körfuboltakvöld og bætti við að hann vildi frekar ræða hvernig hægt væri að þjálfa liðið betur en hvaða erlendu leikmenn ættu alltaf að fara.

Nú er hins vegar staðfest að samningar hafa náðst og Okeke klæðist grænu í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -