HomeNeðri deildir1. deild karlaFrá keppni fram að áramótum

Frá keppni fram að áramótum

Bakvörðurinn efnilegi, Reynir Bjarkan Bárðardal Robertson, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á ökkla í leik KR gegn Ármanni í Bónusdeild karla í gærkvöldi.

Reynir lék aðeins í tæplega þrjár mínútur áður en hann þurfti að yfirgefa völlinn. Samkvæmt staðfestingu frá félaginu er um brot í ökkla að ræða og verður hann frá æfingum og keppni í sjö til átta vikur, eða fram að jólum og áramótum.  

Þetta er mikið áfall fyrir KR sem og 1. deildar lið KV, en Reynir hefur farið afar vel af stað á leiktíðinni og leikið stórt hlutverk með báðum félögum.

Fréttir
- Auglýsing -