HomeBónus deildinBónus deild kvennaBrautryðjendur KR heiðraðir á Meistaravöllum: 65 ár frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í meistaraflokki

Brautryðjendur KR heiðraðir á Meistaravöllum: 65 ár frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í meistaraflokki

Söguleg og hátíðleg stund átti sér stað í DHL-höllinni á Meistaravöllum á miðvikudagskvöld þegar körfuknattleiksdeild KR heiðraði hóp kvenna sem ruddu brautina í upphafi kvennakörfuknattleiks hjá félaginu. Tilefnið var leikur KR og Ármanns í Bónus deild kvenna, en einmitt gegn Ármanni tryggðu þessar sömu konur KR fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins í meistaraflokki kvenna fyrir 65 árum, árið 1961.

Hópurinn kom fyrst saman árið 1959 og landaði fyrsta Íslandsmeistaratitli í sögu körfuknattleiksdeildar KR í 2. flokki vorið 1960, auk þess að vinna fyrsta Reykjavíkurmeistaratitil deildarinnar síðar sama ár. Árið 1961 skrifuðu þær svo nýjan kafla með fyrsta Íslandsmeistaratitli meistaraflokks.

Fyrir leikinn gegn Ármanni komu tólf konur úr upprunalega 15 manna hópnum saman í bikarherbergi KR. Þar áttu þær góða stund saman yfir ljúfum minningum og hlýddu á erindi Gísla Georgssonar, fyrrverandi formanns körfuknattleiksdeildar KR, sem fór yfir sögu og mikilvægi hópsins áður en gengið var til stúku til að fylgjast með nýrri kynslóð KR-kvenna leggja Ármann að velli.

Í þessu sögulega meistaraliði KR á árunum 1959–1962 voru:

  • Erla Björnsdóttir
  • Erna Sigurðardóttir
  • Friðgerður Benediktsdóttir
  • Guðrún Svava Svavarsdóttir
  • Gunnhildur Snorradóttir (látin)
  • Hrafnhildur Skúladóttir
  • Ingibjörg Kjartansdóttir (látin)
  • Ingveldur Ingólfsdóttir
  • Kolfinna Sigurvinsdóttir
  • Margrét Georgsdóttir
  • Margrét Snorradóttir Johnson
  • Málfríður Skúladóttir
  • Vilborg Bjarnadóttir
  • Þorbjörg Valdimarsdóttir (látin)
  • Þóra Ragnheiður Ásgeirsdóttir

Þjálfari liðsins á þessum merka tíma var Þórir Arinbjarnarson (látinn) og formaður deildarinnar var Helgi Sigurðsson (látinn). Körfuknattleiksdeild KR færir brautryðjendunum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag þeirra sem lagði grunninn að kvennakörfubolta félagsins til framtíðar.

Fréttir
- Auglýsing -