Grískur körfuknattleikur logar í óvenju umfangsmiklu og alvarlegu hneykslismáli en lögregla í Grikklandi hefur staðfest handtöku sex einstaklinga vegna rannsóknar á hagræðingu úrslita, mútum og ólöglegu veðmálasvindli. Meðal þeirra handteknu er sjálfur forseti gríska körfuknattleikssambandsins (EOK), Vangelis Liolios, auk þess sem EuroLeague-dómarinn Vasiliki Tsaroucha hefur verið leyst frá störfum á meðan málið er rannsakað. Lögreglan hefur lagt hald á tæpa eina milljón evra í reiðufé (um 931 þúsund evrur) ásamt tölvum, símum og öðrum gögnum.
Samkvæmt frétt BasketNews og vitnisburðum sem grískir miðlar hafa greint frá teygja anga málsins sig víða um gríska boltann. Eitt vitni lýsti því meðal annars að hafa móttekið 100.000 evrur í reiðufé í poka frá samstarfsmanni Liolios, þar sem peningarnir voru vafðir inn í servíettur.
Þá koma fram alvarlegar ásakanir um hvernig reynt hafi verið að losa sig við landsliðsmiðherjann Giorgos Bogris úr liði Promitheas Patras árið 2019. Þegar ekki náðist samkomulag um starfslok átti að beita ákvæði í samningi hans þar sem tæknivillur gátu kostað hann háar sektir; var dómurum meint beitt til að dæma á hann ódýrar tæknivillur til að knýja fram riftun. Einnig er til rannsóknar umdeildur leikur Promitheas og AEK frá árinu 2024 þar sem þjálfari og lykilleikmaður AEK voru reknir af velli.
Ásakanirnar ná jafnvel niður í skólamót, en dómari á miðskólamóti á Kýpur hefur að sögn játað að hafa dæmt viljandi með liði Anagennisi Patras til að hjálpa þeim að tryggja sér sigur. Sigur á mótinu gat veitt nemendum dýrmæt viðbótarstig inn í háskóla í Grikklandi, og sagðist dómarinn hafa gert þetta gegn loforði um að fá dómgæsluverkefni í efstu deild karla í heimalandinu. Liolios hefur neitað sök og heldur því fram að ásakanirnar séu runnar undan rifjum aðila sem reyni að sverta mannorð hans.




