Pekka Salminen og þjálfarateymi A-landsliðs kvenna hafa tilkynnt 15 leikmanna hóp sem kemur saman til æfinga í byrjun nóvember vegna forkeppni EuroBasket 2029.
Ísland hefur leik í Dublin þann 11. nóvember þegar liðið mætir Írum á útivelli, en í kjölfarið bíða tveir mikilvægir heimaleikir gegn Sviss þann 14. nóvember og Aserbaísjan þann 17. nóvember. Hópurinn æfir saman í aðdraganda verkefnisins en tólf leikmenn verða valdir í ferðina til Írlands, áður en seinni gluggi riðilsins tekur við í febrúar.
Darina Andriivna Khomenska úr Aþenu fær sitt fyrsta tækifæri og er eini nýliðinn í hópnum, en Sara Rún Hinriksdóttir hjá KR leiðir hópinn í reynslu með 38 landsleiki að baki. Salminen til aðstoðar eru þeir Daníel Andri Halldórsson og Jamil Abiad, ásamt Arnóri Gauta Ragnarssyni styrktarþjálfara.
Hópurinn sem var valinn:
- Anna Ingunn Svansdóttir, Keflavík (20 landsleikir)
- Ásta Júlía Grímsdóttir, Njarðvík (18 landsleikir)
- Berglind Katla Hlynsdóttir, Bandaríkjunum (2 landsleikir)
- Darina Andriivna Khomenska, Aþena (Nýliði)
- Diljá Ögn Lárusdóttir, Stjarnan (11 landsleikir)
- Emma Theódórsson, Njarðvík (2 landsleikir)
- Eva Wium Elíasdóttir, Stjarnan (9 landsleikir)
- Helena Rafnsdóttir, Njarðvík (3 landsleikir)
- Isabella Ósk Sigurðardóttir, Grindavík (19 landsleikir)
- Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, KR (7 landsleikir)
- Rebekka Rut Steingrímsdóttir, KR (6 landsleikir)
- Sara Rún Hinriksdóttir, KR (38 landsleikir)
- Sigrún Björg Ólafsdóttir, Haukar (13 landsleikir)
- Thelma Dís Ágústsdóttir, Keflavík (29 landsleikir)
- Þóranna Kika Hodge-Carr, Valur (11 landsleikir)




