Ármann eiga enn eftir að innbyrða sitt fyrsta stig í Bónus deild karla eftir 108–74 tap gegn toppliði KR í kvöld.
Ármenningar byrjuðu af miklum krafti og leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, en réðu ekki við mikinn hraða og yfirburði heimamanna undir körfunni þegar á leið. Ingvi Þór Guðmundsson dró vagninn í sóknarleik Ármanns og var bæði stiga- og stoðsendingahæsti leikmaður liðsins með 16 stig og 7 stoðsendingar ásamt því að taka 6 fráköst.
Rætt var við Ingva Þór Guðmundsson í spilaranum hér að neðan.




