Þær Dazia Lawrence (46 stig) og Sara Rún Hinriksdóttir (30 stig) fóru á algjörum kostum þegar KR lagði Ármann að velli í gærkvöldi og skoruðu samtals 76 stig. Eins og tekið er fram á Facebook-síðu tölfræðisíðunnar Körfustatt.is (Stattnördarnir) er þetta ein hæsta stigatala tveggja samherja í sama leik í sögu efstu deildar kvenna, en aðeins þrisvar hefur meira verið skorað.
Síðast gerðist það fyrr á þessu ári þegar Jada Guinn (52) og Ana Clara Paz (25) settu saman 77 stig fyrir Hamar/Þór gegn Ármanni. Þá skoruðu Björg Hafsteinsdóttir (41) og Hanna Kjartansdóttir (36) sömuleiðis 77 stig fyrir Keflavík í frægum 185–30 stórsigri á ÍR árið 1994. Sjálft íslandsmetið er hins vegar í eigu Penni Peppas (52) og Önnu Dísar Sveinbjörnsdóttur (39), sem skelltu í ótrúleg 91 stig fyrir Grindavík gegn ÍR haustið 1996.
Frekari tölfræðimola og umfjöllun má finna á Facebook-síðu Körfustatt.




