HomeBónus deildinBónus deild kvennaFriðrik svekktur eftir baráttuna í Vesturbæ: „Við gerðum leik úr þessu“

Friðrik svekktur eftir baráttuna í Vesturbæ: „Við gerðum leik úr þessu“

Ármenningar máttu þola sitt fjórða tap í jafnmörgum leikjum í Bónus deildinni í kvöld þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR, 102–89, í miklum sóknarleik á Meistaravöllum. Þrátt fyrir flotta byrjun og frábæran leik hjá Diamond Alexis Battles, sem dró vagninn með 35 stigum, reyndust varnarvandræði liðsins gegn skotglöðum heimakonum of dýrkeypt.

Rætt var við Friðrik Jóhannesson, þjálfara Ármanns, í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -