HomeBónus deildinBónus deild kvennaGrindavík enn með fullt hús eftir öruggan sigur í Suðurnesjaslagnum 

Grindavík enn með fullt hús eftir öruggan sigur í Suðurnesjaslagnum 

Grindavík vann 89–75 sigur á Keflavík í nágrannaslag í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna í HS Orku-höllinni í kvöld og heldur þar með fullu húsi stiga á toppi deildarinnar.

Grindvíkingar tóku frumkvæðið strax í fyrsta leikhluta og leiddu 50–39 í hálfleik. Þótt Keflvíkingar reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn héldu heimakonur öruggu forskoti allt fram á lokamínútur. Með sigrinum er Grindavík með átta stig eftir fjóra leiki á meðan Keflavík er áfram með tvo sigra eftir fjórar viðureignir.  

Ellen Nyström átti stórleik fyrir Grindavík og skoraði 31 stig ásamt því að taka 15 fráköst og gefa 4 stoðsendingar. Farhiya Abdi skilaði 24 stigum og 6 fráköstum og Tegan Graham bætti við 11 stigum, en leikstjórnandinn Abby Claire Beeman stjórnaði spilinu glæsilega með 13 stoðsendingar og 8 stig.  

Hjá Keflavík var Amaiquen Siciliano drjúgust með 24 stig og 5 stoðsendingar. Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 15 stig og reif niður 7 fráköst, Anna Lára Vignisdóttir bætti við 12 stigum og Hannah Little tók 9 fráköst. 

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -