Íslenskum körfuknattleiksiðkendum gefst um helgina, 24. og 25. október, kærkomið tækifæri til að kynnast bandaríska framhaldsskólaboltanum af eigin raun þegar svokallað High School Basketball Showcase fer fram á Álftanesi.
Þangað mæta þjálfarar frá öflugum skólum í Norður-Ameríku til þess að berja unga leikmenn augum, en viðburðurinn fer fram frá klukkan 10:00 til 12:00 báða dagana og samanstendur af æfingum og fyrirlestrum um skólakerfið ytra.
Meðal þeirra skóla sem senda fulltrúa eru Spire Academy, þar sem NBA-stjarnan LaMelo Ball lék á sínum tíma, hinn öflugi kanadíski skóli Fort Erie, Christchurch School og Westtown School, sem státar af einu allra sterkasta stúlknastarfi í Bandaríkjunum en þar leikur Sigrún Sól Brjánsdóttir, leikmaður yngri landsliða Íslands. Fulltrúar GESP-samtakanna verða einnig á svæðinu, en þau sérhæfa sig í að tengja krakka við skóla á réttu getustigi í Bandaríkjunum.
Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari U20-landsliðs karla, verður erlendu þjálfurunum innan handar um helgina og stýrir æfingum með þeim. Kjartan, sem á sjálfur dóttur í framhaldsskóla í Bandaríkjunum, segir landslagið geta virkað flókið í fyrstu og því sé frábært að krakkarnir fái beina tengingu við þjálfarana hér heima.
„Ég þekki bandaríska íþróttalandslagið á eigin skinni, því dóttir mín er á sínu öðru ári í High School í Bandaríkjunum og leikur þar fótbolta. Að hefja þennan leiðangur getur virkað erfitt í fyrstu; við manni blasir víðáttumikið landslag, endalaust af liðum, riðlum og deildum. Þess vegna er mjög gott að boðið sé upp á svona showcase á Íslandi þar sem krakkarnir komast í beint samband við fulltrúa liðanna,“ segir Kjartan Atli.
Hann bætir við að þrátt fyrir að stökkið virki stórt geti reynslan verið ómetanleg. „Að kynnast nýrri menningu og fólki víðsvegar að úr heiminum er dýrmætt. Að feta sig í nýju skólakerfi er skemmtileg áskorun og heimurinn verður miklu stærri. Vissulega er þetta persónubundið og mikilvægt að vanda valið vel, en að mæta á svona viðburð er frábært fyrsta skref fyrir krakka sem eru í þessum pælingum.“




