Fjórðu umferð Bónus deildar kvenna lýkur í kvöld með tveimur leikjum sem báðir hefjast klukkan 19:15.
Topplið Grindavíkur, sem hefur farið taplaust í gegnum fyrstu þrjár umferðirnar og situr á toppi deildarinnar með sex stig, tekur á móti nágrönnum sínum úr Keflavík. Keflvíkingar freista þess að rétta sinn hlut eftir erfiða byrjun en liðið er í áttunda sæti með tvö stig eftir einn sigur í fyrstu þremur leikjunum.
Í hinni viðureign kvöldsins fær KR lið Ármanns í heimsókn í Vesturbæinn. KR getur með sigri jafnað efstu lið deildarinnar að stigum en liðið vermir fjórða sætið með fjögur stig. Ármenningar leita enn að sínum fyrsta sigri á leiktíðinni og sitja í níunda sæti án stiga.




