Haukar sóttu dýrmæt tvö stig að Hlíðarenda í kvöld með 90–85 sigri á Val í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna, en með úrslitunum jöfnuðust liðin að stigum um miðja deild og sitja Haukar nú í fjórða sætinu á meðan Valur fellur niður í það sjöunda.
Gestirnir úr Hafnarfirði sýndu mikla seiglu á lokasprettinum eftir að hafa misst frumkvæðið um tíma í síðari hálfleik.
Í spilaranum hér að neðan er rætt við Rósu Björk Pétursdóttur, leikmann Hauka, sem fer yfir sveiflurnar í leiknum og sterkan lokasprett liðsins.




