Dregið var í 16-liða úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfuknattleik í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag í beinni útsendingu á Facebook-síðu KKÍ.
Í kvennaflokki fara leikirnir fram dagana 12. og 13. desember næstkomandi. Þar má finna athyglisverða úrvalsdeildarslagi en Keflavík tekur á móti Fjölni, Njarðvík fær Val í heimsókn og ÍR mætir Grindavík. Þá fær Þór Akureyri lið Ármanns í heimsókn, KR tekur á móti Selfossi, Aþena mætir Breiðabliki, Haukar taka á móti Tindastóli og Stjarnan fær Þór úr Þorlákshöfn í heimsókn.
Karlamegin verður leikið dagana 13. og 14. desember. Mikill spenningur verður í Breiðholti þar sem ÍR tekur á móti KR og Tindastóll fá Stjörnuna í heimsókn á Sauðárkrók. Þá fær Valur lið Sindra í heimsókn, Njarðvík mætir Breiðabliki og Höttur tekur á móti Keflavík á Egilsstöðum. Í öðrum viðureignum mætir Snæfell sameiginlegu liði Aþenu/Leiknis, Hamar fær Álftanes í heimsókn í Hveragerði og KV tekur á móti Ármanni.




