HomeBónus deildinBónus deild karlaReynslumikill leikmaður á Krókinn

Reynslumikill leikmaður á Krókinn

Tindastóll hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í Bónusdeild karla en félagið greindi frá því á samfélagsmiðlum að samið hafi verið við hinn 34 ára gamla Nemanja Djurisic.

Sauðkrækingar fóru vel af stað á nýju tímabili og sitja í þriðja sæti deildarinnar með fjögur stig eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum, en liðið varð fyrir miklu áfalli í upphafsumferðinni þegar Adomas Drungilas tvífótbrotnaði.  

Djurisic er ætlað að fylla skarð Drungilas í fremstu víglínu Stólanna. Hann leikur fyrst og fremst sem framherji en getur einnig leyst stöðu miðherja. Svartfellingurinn kemur með mikla reynslu að borðinu eftir langan atvinnumannaferil víðs vegar um Evrópu ásamt því að hafa leikið landsleiki fyrir þjóð sína.

Fréttir
- Auglýsing -