Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fóru þeir Davíð Eldur, Jón Frí og Strikerinn Árni Jó yfir allt það helsta úr fréttum vikunnar, gerðu upp nýliðna umferð í Bónusdeild karla og rýndu í frammistöðu erlendu leikmannanna. Þar stilltu þeir upp topp fimm lista yfir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar það sem af er tímabili:

Topp 5: Bestu kanarnir
1. Jamir Chaplin (Keflavík)
Trónir á toppnum eftir magnaða byrjun. Chaplin er stigahæsti leikmaður deildarinnar, með hæstu skotprósentuna þrátt fyrir að taka flestar tilraunir, flesta stolna bolta og hæsta framlagið í deildinni.
2. Dedrick Basile (Álftanes)
Skipar annað sætið. Basile hefur gefið flestar stoðsendingar allra í deildinni og allir vita nákvæmlega hvers hann er megnugur á vellinum.
3. Marquis Jackson (Höttur)
Tekur þriðja sætið. Var frábær þegar hann leiddi Hött til sigurs í Garðabænum.
4. Montez Mathis (ÍR)
Vermir fjórða sætið. Mathis er með hæstu þriggja stiga nýtinguna í deildinni og hefur að auki varið flest skot allra.
5. Kaleb Higgins (Sindri)
Lokar topp fimm listanum. Higgins er með hæstu skotnýtinguna í tveggja stiga skotum, tapar fáum boltum og státar af næsthæsta framlagi deildarinnar — og mun líklega rjúka enn hærra upp þegar sigurleikirnir fara að detta inn hjá Sindra.
Næstur inn:
- Kynion Hodges (Ármann) – Var næstur inn á listann eftir að hafa sett 26 stig í Síkinu á Sauðárkróki.
Til umræðu en náðu ekki inn á listann:
- Makye Richards (Njarðvík) og Jeremy Pargo (Grindavík) voru ræddir en töldust ekki nógu góðir í upphafi tímabils til að komast á blað.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




