HomeÚti í heimiEvrópaLeggur skóna á hilluna eftir stutt stopp í Georgíu

Leggur skóna á hilluna eftir stutt stopp í Georgíu

Bandaríski miðherjinn og NBA-goðsögnin Dwight Howard hefur formlega kvatt atvinnumannaferilinn í körfuknattleik. Georgíska liðið Black Fortress Tbilisi greindi frá því að Howard hafi leikið sinn síðasta leik á ferlinum síðastliðinn laugardag þegar liðið mátti þola 82–89 tap gegn TSU. Howard skoraði 10 stig, tók 4 fráköst og gaf 2 stoðsendingar í kveðjuleiknum, en í fyrsta leik sínum í Georgíu var hann nálægt tvennunni með 12 stig, 7 fráköst og 3 varin skot.

Howard, sem er meðlimur í Frægðarhöll körfuknattleiksins (Naismith Memorial Basketball Hall of Fame), lék sinn síðasta leik í NBA-deildinni árið 2022 með Los Angeles Lakers. Eftir það lék hann í Taívan, tók þátt í mótum í Dúbaí og spilaði í bandarísku BIG3-deildinni áður en hann hélt til Georgíu.

Á 18 ára ferli sínum í NBA var Howard einn af allra öflugustu miðherjum deildarinnar. Hann var átta sinnum valinn í Stjörnuleikinn, fimm sinnum í úrvalslið deildarinnar og valinn besti varnarmaður NBA þrjú ár í röð. Þá varð hann NBA-meistari með Lakers árið 2020. Howard lék alls 1.242 leiki í deildinni og lauk NBA-ferlinum með 15,7 stig, 11,8 fráköst og 1,8 varin skot að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -