Dregið verður í 16-liða úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfuknattleik í dag klukkan 14:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. 32-liða úrslitum lauk í gærkvöldi og verður drættinum streymt beint á Facebook-síðu KKÍ.
Í potti kvennamegin verða sextán lið: Aþena, Ármann, Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Haukar, ÍR, Keflavík, KR, Njarðvík, Selfoss, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Þór Ak. og Þór Þ. Aðeins ein viðureign fór fram í 32-liða úrslitum kvenna en önnur lið sátu hjá og hefja leik í 16-liða úrslitum.
Í karlaflokki tryggðu þrettán lið sér áframhaldandi veru með sigrum í 32-liða úrslitum á meðan þrjú lið sátu hjá. Liðin sem verða í pottinum í dag eru Aþena/Leiknir, Ármann, Álftanes, Breiðablik, Hamar, Höttur, ÍR, Keflavík, KR, KV, Njarðvík, Sindri, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll og Valur.




