HomeBikarkeppniBlikar skelltu Grindavík í Vísbikarnum – Endurkoma DeAndre Kane dugði ekki til

Blikar skelltu Grindavík í Vísbikarnum – Endurkoma DeAndre Kane dugði ekki til

Breiðablik tryggði sér sæti í næstu umferð Vísbikars karla með afar öruggum og óvæntum 109–85 heimasigri á Grindvíkingum í kvöld. Það bar hæst að DeAndre Kane spilaði sinn fyrsta leik fyrir Grindavík eftir að hafa komið aftur til liðsins um helgina, en hann hafði ekkert leikið með þeim síðan þeir fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum síðastliðið vor. Kane reyndist stigahæstur hjá Grindavík með 22 stig og 4 fráköst, ásamt því að Arnór Tristan Helgason skoraði 15 stig, en það dugði skammt gegn sjóðheitum Blikum. Adrian Darren McIntyre fór fyrir heimamönnum með 27 stig, 11 stoðsendingar og 9 fráköst, auk þess sem Viktor Máni Steffensen skilaði 17 stigum.  

Tindastóll sótti sigur á Ásvelli gegn Haukum þar sem lokatölur urðu 80–103. Gestirnir gerðu nánast út um leikinn með miklum yfirburðum í öðrum leikhluta þar sem þeir unnu leikhlutann 6–22. Demerquis Bost fór fyrir Stólunum með 21 stig og 11 stoðsendingar, en Ade Murkey bætti við 16 stigum og 10 fráköstum. Í liði Hauka voru þeir Hilmir Hallgrímsson og Frosti Valgarðsson atkvæðamestir með 18 stig hvor.  

Álftanes vann sömuleiðis sannfærandi sigur á Akranesi þegar liðið lagði ÍA að velli með 73 stigum gegn 95. Sigurður Pétursson átti frábæran leik í liði gestanna og skoraði 26 stig ásamt því að taka 7 fráköst, á meðan Martins Laksa setti niður 18 stig. Hjá Skagamönnum var Gojko Sudzum stigahæstur með 19 stig og 8 fráköst.  

Mikil stigaveisla fór fram í Flóanum þegar KV heimsótti sameinað lið Laugdæla og Uppsveita og hafði betur, 103–115. Leikurinn bauð upp á hreint magnað einvígi tveggja leikmanna sem brutu báðir 40 stiga múrinn, en Finnur Tómasson skoraði 41 stig fyrir KV á meðan Clinton Bernard Wright Jr. setti einnig 41 stig ásamt 6 stoðsendingum fyrir heimamenn. Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson átti einnig stórleik fyrir KV með 25 stig og 10 fráköst.

Fréttir
- Auglýsing -